1. |
Engan skal hungra
03:24
|
|
||
Takk fyrir að vernda mig fyrir sjálfræði mínu
Með gas í augunum og kylfu í höfðinu
Áminning um varnarleysið gagnvart almættinu
Sýn mín á réttlæti og frelsi
Ávallt þrengri en réttarríkisins
Með lögum og reglum skal tryggja
Að pípurnar leiði ávallt rotþrónna
Á matardiska hvers einasta mannsbarns
Engan skal hungra
Engan skal hungra í frelsi
Hugurinn er okkar en holdið er þeirra
Og fætur okkar feta í fótspor
Merkra manna, innrammaðra
|
||||
2. |
Einskis virði
01:32
|
|
||
Sigurvegarar farast harmdauða
Fjölskyldufólk, píslarvottar, þjóðhetjur
Þeir sem tapa eru bara tölur á blaði
Þú skrifar ekki söguna þegar þú ert dauður
Þú ert einskis virði
Nafnlaus andlit, nafnlaus lík
Línurit, súlurit, fjöldagröf
Þeir sem tapa fá enga minnisvarða
Þú flytur ekki fréttirnar þegar þú ert dauður
|
||||
3. |
Fjöllin blá
01:59
|
|
||
Ég kjamsaði á hamborgaranum mínum
"Ég held að franskarnar þeirra
Séu þær allra bestu í Reykjavík!"
Þú tókst undir það og spurðir:
"Hvað finnst þér um ástandið í Palestínu?"
"Hvað finnst þér um átökin í Sýrlandi?"
"Hvað finnst þér um Ameríska heimsvaldastefnu?"
Við ræddum málin fram og aftur
Á meðan það dundi í vélbyssum
Á meðan sprengjur féllu
Á meðan manneskjur dóu
"Við verðum víst bara að vera sammála
Um að vera ósammála"
|
||||
4. |
Niðurvald
03:57
|
|
||
Er ég raddlaus?
Mun heyrast í mér ef ég öskra?
Er ég stari í byssuhlaupið
muntu líka við blóði drifnar myndir
af mér
á internetinu?
Ég gefst upp
|
Streaming and Download help
If you like Börn, you may also like: